top of page
Greinar eftir Unnar Freyr Jónsson
Hér má finna nokkrar greinar eftir Unnar Frey Jónsson.
Search
Þegar fyrirtæki byrja að tapa
Það er auðvelt að tala um vöxt þegar allt gengur vel. Þá eru hugmyndirnar margar, framtíðin björt og línurnar vísa upp á við. Það er erfiðara að tala um fyrirtæki sem eru byrjuð að tapa. Þegar rekstur þyngist verður fyrsta spurningin oft: „Hvar getum við skorið niður?“ Það er eðlilegt. Kostnaður er sýnilegur. Reikningarnir liggja á borðinu. Launin fara út á ákveðnum degi. Leigan kemur mánaðarlega. En fyrsta spurningin ætti kannski frekar að vera: „Hvað er raunverulega að gera
2 min read
Tekjumódelið þarf að þola áföll
Tekjumódelið er eitthvað sem er gott að skoða reglulega. Hér eru nokkrir punktar sem mér finnst gott að hafa í huga. 1. Fjölbreyttir tekjumöguleikar: Ef við seljum út þjónustu, getum við bætt við einhverri vörusölu og öfugt? Getum við selt út þjónustusamninga ? Er þjónustan/varan sem við seljum of einsleit ? 2. Jafnvægi milli uppruna: Þetta tryggir að fyrirtækið sé ekki háð einni tekjulind og minnkar áhættu vegna tekjufalls úr einni átt. Með jafnvægi er átt við 30%/30%/
1 min read
Að breyta tapi i hagnað krefst bæði tekna og aga
Þegar illa árar standa fyrirtæki frammi fyrir þungum verkefnum. Hluti af því að breyta tapi yfir í hagnað er að skoða tekjusköpun og kostnaðarstjórnun. Áskoranir tengdar tekjum: Það þarf að fara í markaðsrannsóknir, búa til nýja stefnu, reyna að skilja betur þarfir viðskiptavina og hvað sé að gerast hjá samkeppninni. Skoða þarf hvort nýtt vöruframboð eða nýjar þjónustuleiðir geti skapað auknar tekjur. Stöðug sölu- og markaðsáætlun sem er fylgt er nauðsynleg til að laða að nýj
2 min read
Ábyrgð án ramma er óskýr ábyrgð
Þegar við berum ábyrgð á verkefni felur það í sér að horfa á hvað þarf að gera, átta sig á næstu skrefum, framkvæma verkefnið og síðan tryggja eftirfylgni. Við þetta tvinnast skýr afhending verkefna á milli aðila og að átta sig á því hver ber ábyrgð á að hvað sé gert á hvaða og á hvaða tímapunkti. Ábyrgðin er bæði hjá starfsmanni að bera raunverulega ábyrgð á því að framkvæma verkið og trausti næsta yfirmanns til þess að verkefnið sé leyst af starfsmanni. Hætturnar geta meðal
1 min read
Rangir mælikvarðar búa til ranga hegðun
Við ákvarðanatöku, við eftirfylgni og þegar við reynum að útskýra vandamál reynum við að setja upp mælikvarða til að skilgreina bæði stöðuna og hinsvegar líka væntingarnar. Hættan er að mælikvarðar geta líka búið til vandamál ef þeir eru illa útfærðir. Afköst og frammistaða geta til að mynda verið mæld útfrá tekjuhlið og kostnaðarhlið. Vandamálið er hinsvegar að stór rekstrarreikningur segir ekki endilega til um framleiðni og hagkvæmni. Í umferðinni í morgun fór ég í smá huga
2 min read
bottom of page