top of page
Search

Rangir mælikvarðar búa til ranga hegðun

Við ákvarðanatöku, við eftirfylgni og þegar við reynum að útskýra vandamál reynum við að setja upp mælikvarða til að skilgreina bæði stöðuna og hinsvegar líka væntingarnar.


Hættan er að mælikvarðar geta líka búið til vandamál ef þeir eru illa útfærðir. Afköst og frammistaða geta til að mynda verið mæld útfrá tekjuhlið og kostnaðarhlið. Vandamálið er hinsvegar að stór rekstrarreikningur segir ekki endilega til um framleiðni og hagkvæmni.


Í umferðinni í morgun fór ég í smá hugarfimleika. Ég velti upp spurningunni "Hvernig verð ég næst dýrasti launamaður landsins í dag?" Ég byrjaði að fylgja lestarteinunum og hugsa út í "Hver er næst launahæsti starfsmaðurinn á Íslandi ?", "Hvað gerir hann og hvaða hvatar búa að baki ?" Síðan fór ég að hugsa hvaða þættir gætu haft mestu áhrifin ? Er það value proposition þar sem ég get tengt laun við afköst. Eru það ákveðin kaup eða sölur á viðskiptagjörningum ?


Síðan þegar umferðin var búin að ganga enn lengur fór ég að hugsa meira um mælikvarðann frekar en frammistöðuna. Ég get líka farið í lægsta samnefndarann. Ég þarf bara vera dýr, ekki endilega peninganna virði. Og ég þarf ekki að vera sá sem nýt kostnaðarins, heldur bara sá sem veldur honum. Ég get fundið út hver er dýrasti launamaðurinn, og án mikillar fyrirhafnar get ég setið fyrir honum og sóað tíma hans. Það er mjög dýrt.


Ég get keyrt fyrir framan starfsmanninn í umferðinni löturhægt þegar hann er á leiðinni á fund, hlaupið á undan honum í lyftur og lokað þeim á nefið á honum og verið með almenn leiðindi. Ég get boðið honum og 10 öðrum á fund sem dregst langt umfram boðaðan fundartíma.


Jafnvel þó ég njóti ég ekki ágóða af því hversu dýr hegðun mín sé, uppfylli ég mælikvarðann "Næst dýrasti launamaðurinn". Ég yrði dýr á rekstrarreikningi með sóun á tíma þess dýrasta.


Punkturinn er tvíþættur. Völd og áhrif eru ekki beintengd launum. Og skýr skilgreining á hvað er mælt og hvernig er hægt að hafa áhrif á það skiptir sköpum. Ef ég get haft bein áhrif með low stakes hegðun með high impact áhrifum þarf mögulega að skoða mælikvarðann uppá nýtt.


Það er aldrei leiðinlegt í umferðinni.

 
 
 

Recent Posts

See All
Þegar fyrirtæki byrja að tapa

Það er auðvelt að tala um vöxt þegar allt gengur vel. Þá eru hugmyndirnar margar, framtíðin björt og línurnar vísa upp á við. Það er erfiðara að tala um fyrirtæki sem eru byrjuð að tapa. Þegar rekstur

 
 
 
Tekjumódelið þarf að þola áföll

Tekjumódelið er eitthvað sem er gott að skoða reglulega. Hér eru nokkrir punktar sem mér finnst gott að hafa í huga. 1. Fjölbreyttir tekjumöguleikar: Ef við seljum út þjónustu, getum við bætt við e

 
 
 
Að breyta tapi i hagnað krefst bæði tekna og aga

Þegar illa árar standa fyrirtæki frammi fyrir þungum verkefnum. Hluti af því að breyta tapi yfir í hagnað er að skoða tekjusköpun og kostnaðarstjórnun. Áskoranir tengdar tekjum: Það þarf að fara í mar

 
 
 

Comments


Unnar Freyr Jónsson

bottom of page