Tekjumódelið þarf að þola áföll
- Unnar Freyr Jónsson
- May 12
- 1 min read
Tekjumódelið er eitthvað sem er gott að skoða reglulega. Hér eru nokkrir punktar sem mér finnst gott að hafa í huga.
1. Fjölbreyttir tekjumöguleikar: Ef við seljum út þjónustu, getum við bætt við einhverri vörusölu og öfugt? Getum við selt út þjónustusamninga ? Er þjónustan/varan sem við seljum of einsleit ?
2. Jafnvægi milli uppruna: Þetta tryggir að fyrirtækið sé ekki háð einni tekjulind og minnkar áhættu vegna tekjufalls úr einni átt. Með jafnvægi er átt við 30%/30%/40 % skiptingu frekar en 50%/50% eða 90%/10%.
3. Framtíðarhorfur: Hvaða ytri áhrif geta haft áhrif á tekjurnar ? Með góðu jafnvægi og fjölbreyttum möguleikum minnka líkurnar verulega á að tekjufall í einum flokki knésetji fyrirtækið.
Með því að hafa góða samsamsetningu í tekjumódelinu er fyrirtæki betur undirbúið til að takast á við áföll og sækja síðar fram aftur.
Comments