top of page
Search

Að breyta tapi i hagnað krefst bæði tekna og aga

Þegar illa árar standa fyrirtæki frammi fyrir þungum verkefnum. Hluti af því að breyta tapi yfir í hagnað er að skoða tekjusköpun og kostnaðarstjórnun.


Áskoranir tengdar tekjum: Það þarf að fara í markaðsrannsóknir, búa til nýja stefnu, reyna að skilja betur þarfir viðskiptavina og hvað sé að gerast hjá samkeppninni. Skoða þarf hvort nýtt vöruframboð eða nýjar þjónustuleiðir geti skapað auknar tekjur. Stöðug sölu- og markaðsáætlun sem er fylgt er nauðsynleg til að laða að nýja kúnna og halda í eldri viðskiptavini. Þegar það hallar undan fæti í rekstri er ekki rétti tíminn til að slaka á markaðsbensíngjöfinni. Einnig þarf að hafa í huga hvort tekjumódelið sé enn áreiðanlegt eða hvort aðstæður séu svo breyttar að það þurfi að endurskoða það í heild sinni


Áskoranir tengdar kostnaði: Skoða þarf hvort hægt sé að straumlínulaga innri ferla og auka þar með framleiðni og hagkvæmni. Þetta geta verið einföld atriði eins og að færa framleiðslutæki nær hvert öðru eða stærri breytingar eins og að flytja starfsemina annað í ódýrari húsakynni.  Skoða þarf hvort starfsfólk þurfi aukna þjálfun, boðleiðir séu nægilega skýrar og hverjir hafa heimildir til að stofna til kostnaðar. Leiðinlegasta verkefnið er að skoða alla reikninga og sjá hvar stærstu kostnaðarliðirnir eru.


Að jafna tekjur og kostnað: Það að ákveða rétta álagningarstefnu sem hámarkar tekjur en er samkeppnishæf er allt annað en auðvelt, sérstaklega þegar hver króna skiptir sköpum. Að stjórna fjárhagnum vel, þar á meðal með því að fylgjast með reikningagerð, skuldum og birgðum, er nauðsynlegt til að tryggja stöðuga sjóðsstreymi. Oft er gott að setja upp líkön í excel með lykiltölum og breyta síðan forsendunum til að átta sig á hver þörfin er með tilliti til samkeppninnar.


Það er nauðsynlegt að takast á við þessar áskoranir með heildrænni endurskoðun. Með því að skoða vandamáið frá fleiri en einum vinkli er líklegra að við náum árangri. Það er langhlaup að snúa tapi yfir í hagnað og það gerist aðeins með miklum aga og krítískum spurningum.

 
 
 

Recent Posts

See All
Þegar fyrirtæki byrja að tapa

Það er auðvelt að tala um vöxt þegar allt gengur vel. Þá eru hugmyndirnar margar, framtíðin björt og línurnar vísa upp á við. Það er erfiðara að tala um fyrirtæki sem eru byrjuð að tapa. Þegar rekstur

 
 
 
Tekjumódelið þarf að þola áföll

Tekjumódelið er eitthvað sem er gott að skoða reglulega. Hér eru nokkrir punktar sem mér finnst gott að hafa í huga. 1. Fjölbreyttir tekjumöguleikar: Ef við seljum út þjónustu, getum við bætt við e

 
 
 
Ábyrgð án ramma er óskýr ábyrgð

Þegar við berum ábyrgð á verkefni felur það í sér að horfa á hvað þarf að gera, átta sig á næstu skrefum, framkvæma verkefnið og síðan tryggja eftirfylgni. Við þetta tvinnast skýr afhending verkefna á

 
 
 

Comments


Unnar Freyr Jónsson

bottom of page