top of page
Search

Ábyrgð án ramma er óskýr ábyrgð

Þegar við berum ábyrgð á verkefni felur það í sér að horfa á hvað þarf að gera, átta sig á næstu skrefum, framkvæma verkefnið og síðan tryggja eftirfylgni. Við þetta tvinnast skýr afhending verkefna á milli aðila og að átta sig á því hver ber ábyrgð á að hvað sé gert á hvaða og á hvaða tímapunkti.


Ábyrgðin er bæði hjá starfsmanni að bera raunverulega ábyrgð á því að framkvæma verkið og trausti næsta yfirmanns til þess að verkefnið sé leyst af starfsmanni.


Hætturnar geta meðal annars falist í að starfsmaður leysi ekki verkefnið og sparki því alltaf upp til næsta yfirmanns. Einnig er hætta á að yfirmaður treysti ekki starfsmanni til að leysa verkefnið og skipti sér of mikið af öllum smáatriðum. Það veldur því að starfsmaður upplifi frekar að hann beri í reynd ekki ábyrgð á verkefninu heldur sé einungis að bregðast við fyrirmælum næsta yfirmanns sem raunverulega sé með verkefnið.


Þessi dans getur valdið bæði pirringi og óljósum línum um hvar verkefnið liggur. Þetta er vandmeð farið og leysist einungis með skýrum samskiptum og afmörkuðum ramma.


Ramminn felst meðal annars í hvað fjármuni starfsmaður hefur til að ráðstafa, hvaða skuldbindingarheimildum starfsmaður hefur yfir að ráða og hver rammi vafaatriða sé. Með öðrum orðum - hvaða telst sem vafaatriði og hvenær á að leita til næsta yfirmanns.


Sjálfum tekst mér ekki alltaf til enda gildir alltaf gamli góði málshátturinn, margur telur mig sig. Það er auðvelt að ætla öðrum að skilja hvað maður er að hugsa, erfiðara fyrir aðra að lesa það.



 
 
 

Recent Posts

See All
Þegar fyrirtæki byrja að tapa

Það er auðvelt að tala um vöxt þegar allt gengur vel. Þá eru hugmyndirnar margar, framtíðin björt og línurnar vísa upp á við. Það er erfiðara að tala um fyrirtæki sem eru byrjuð að tapa. Þegar rekstur

 
 
 
Tekjumódelið þarf að þola áföll

Tekjumódelið er eitthvað sem er gott að skoða reglulega. Hér eru nokkrir punktar sem mér finnst gott að hafa í huga. 1. Fjölbreyttir tekjumöguleikar: Ef við seljum út þjónustu, getum við bætt við e

 
 
 
Að breyta tapi i hagnað krefst bæði tekna og aga

Þegar illa árar standa fyrirtæki frammi fyrir þungum verkefnum. Hluti af því að breyta tapi yfir í hagnað er að skoða tekjusköpun og kostnaðarstjórnun. Áskoranir tengdar tekjum: Það þarf að fara í mar

 
 
 

Comments


Unnar Freyr Jónsson

bottom of page